Mars 2010 Queen Raquela er komin út á DVD og fæst í helstu verslunum landsins og hérna í vefverslun Poppoli, einnig er hægt að kaupa niðurhal af myndinni. Myndin heldur áfram að ferðast um á kvikmyndahátíðum ásamt Stóra Planinu þessa dagana. Yfir hundrað þúsund manns hafa skoðað netseríuna okkar um Hringfarana, englana sem sjá um skítverkin á himnum. |
|
Væntanlegt Seint í haust 2010 koma út tvær myndir frá Poppoli. Annarsvegar heimildamynd Land míns föður - um bændur í og við Búðardal og hinsvegar leikin kvikmynd sem tekin er upp á sömu slóðum, myndin heitir Kurteist Fólk og er leikstýrt af Olaf de Fleur sem skrifaði handrit ásamt Hrafnkeli Stefánssyni. |