


BLINDSKER
Heimildamynd um Bubba Morthens. Edduverðlaun "Besta Íslenska heimildamyndin" 2004. Útgáfa: Október 2004
BLINDSKER
$2.99
Documentary - 100 Minutes - Icelandic - no subtitles
Ólafur Páll Gunnarsson - Handritshöfundur
Það er freistandi að byrja þennan pistil á orðunum; Það er fyrir löngu orðið tímabært að gerð sé almennnileg heimildarmynd um tónlistarmanninn Bubba Morthens. Ég hef ákveðið að nota ekki þau orð heldur: Er ekki kominn tími til að einhver standi upp og segi það sem svo margir hafa hugsað árum saman, Gerum almennilega mynd um rokkarann, trúbadúrinn, veiði-brjálæðinginn, boxarann, dópistann, slagsmálahundinn, friðarsinnann, elskhugann, föðurinn, soninn, bróðurinn - manninn Bubba Morthens.
Það þekkja allir Bubba Morthens og það hafa allir skoðun á honum. Hann á marga vini af ýmsum toga. Hann er kunnugur stjórnmálamönnum og forsetum núverandi og fyrrverandi, en hann á líka marga gamla vini og félaga á meðal þeirra sem verst hafa farið með líf sitt. Hann þekkir undirheimalýðinn, dópista, mellur og morðingja.
Margir þessara ógæfumanna eru gamlir vinir Bubba, en öðrum hefur hann kynnst á sínum árlegu tónleikum á Litla Hrauni, en þangað hefur hann farið og spilað fyrir fangana á aðfangadag jóla undanfarin 20 ár, og iðullega hefur hann dregið með sér fleiri listamenn, rithöfunda sem hafa lesið upp úr verkum sínum eða aðra tónlistarmenn.
Bubbi er fyrst og fremst þekktur fyrir tónlistina sína og í þeim efnum hefur hann komið nálgægt ýmsum stefnum og stílum.
Hann hefur rokkað, spilað pönk, metal, kántrí, þjóðlagatónlist, Sænska meira að segja, vikivaka, allar mögulegar tegundir af popptónlist,,,hann var fyrsti vestræni tónlistarmaðurinn til að gera plötu á Kúbu frá því Castró komst til valda.
Og Bubbi Morthens var meira að segja fyrstur íslendinga til að RAPPA á íslensku (Þrír heimar 1994).
Hann er líka fyrstur íslendinga til að semja lag um misnotkun á börnum (Hann elskar mig ekki- Allar Áttir 1996), hann var fyrstur íslenskra tónlistarmanna til að taka upp hanskann fyrir homma (Strákarnir á Borginni – Ný Spor 1984) og þannig mætti lengi telja. Bubbi er frumkvöðull á ótrúlega mörgum sviðum þegar kemur að íslenskri dægurtónlist. Fyrsti íslenski geisladiskurinn er til að mynda með Bubba (Frelsi til Sölu 3. Júlí 1987).Bubbi hefur sungið gúanórokk um 1000 þorska sem á færibandinu þokast nær.
Hann hefur sungið það er gott að elska í anda Neil Young, hann hefur sungið um morðingja, börnin sín þrjú, um Guðmund Ingólfsson, um alkóhólisma, eyturlyfin, ógæfumenn sem hann þekkir eða þekkti, hann hefur sungið um stjórmálamenn, um kjarnorkusprengjur og kossa án vara. Og á nýjustu plötunni hans (Sól að morgni 2002) er meira að segja sálmur sem nú þegar er kominn inn í íslensku sálmabókina. Bubbi hefur sungið um allt það sem er til í þessum heimi og annarstaðar,,,og þó víðar væri leitað.
Bubbi Morthens er líka maðurinn sem setti í gang tónlistarbylgju fyrir rúmum 20 árum sem rekja má velgengni íslenskra hljómsveita á erlendri grundu undanfarin ár til. Einar Örn Benediktsson stofnaði Purrk Pillnikk eftir að hann hafði unnið sem umboðsmaður Utangarðsmanna (hljómsveitinni sem Bubbi var í frá 1980-1981) í nokkurn tíma. Eftir að Purrkurinn söng sitt síðasta hóf Einar upp garg sitt með Sykurmolunum. Sykurmolarnir gerðu einar þrjár plötur og hættu svo og Björk sem vildi verða stór stelpa fór út í heim til að kanna ókunn lönd. Sögu hennar þarf ekki að segja hér. En í umræðunni um útrás íslenskra hljómsveita og tónlistarmanna undanfarin ár gleymist yfirleitt alltaf að minnast á þátt Bubba Morthens. Bubba sem selt hefur fleiri plötur en nokkur annar tónlistarmaður (á Íslandi). Hann hefur selt fleiri plötur en Elvis, Bítlarnir og Rolling Stones,,,og margfalt fleiri plötur en Björk – Sigurrós og Múm til samans. Og núna á síðasta ári stóð kóngurinn enn og aftur uppi sem sigurvegari hinnar sér-íslensku jólaplötuvertíðar og seldi fleiri plötur en allir aðrir,,,ef undan er skilin hljómsveitin sem skartar söngkonunni sætu frá Húsavík.
Bubba hefur aldrei boðist að spila á Airwaves tónlistarhátíðinni,,,hann þykir víst ekki nógu svalur,,,og svo er hann líka orðinn svo gamall!
Eftir Bubba liggja næstum 50 plötur sem innihalda nálægt 500 lög í það heila.
En hvernig stendur á því að hann er sá eini sem hefur sungið lögin sín inn á plötu? Það er búið að gefa út plötur til heiðurs Megasi, Villa Vill, Stuðmönnum og Hallbirni Hjartarsyni,,,en ekki Bubba, þrátt fyrir þau áhrif sem hann hefur haft og allt það magn sem hann hefur sent frá sér síðan Ísbjarnarblúsinn kom út 1980. Hvernig getur staðið á því eins og hann komst sjálfur að orði í samnefndu lagi.
Jónatan Garðarsson Bubbi Morthens - Ágrip
Það hafa fáir tónlistarmenn lýst íslenskum veruleika í orðum og tónum af jafn miklu næmi og Bubbi Morthens. Hann hefur speglað veruleika þúsunda Íslendinga, orðað hugsanir alþýðunnar, þrár og langanir. Sorg, reiði og vonbrigði til jafns við gleði og fögnuð íslensku þjóðarinnar; þjóðar sem stokkið hefur margar aldir fram í tímann á fáeinum áratugum. Þessi hæfileiki Bubba til að setja sig í spor venjulegra Íslendinga er trúlega lykillinn að vinsældum hans, enda er Bubbi sjálfur venjulegur Íslendingur - eða hvað. Þegar betur er að gáð er hann það sennilega ekki, því móðir hans var dönsk og faðir hans af norsku faðerni og íslenskur í móðurættina. Áður en ætterni Bubba og lífshlaup er rakið nánar er rétt að gera stuttlega grein fyrir stöðu hans sem tónlistarmanns.
Staða Bubba Morthens á íslenskum hljómplötumarkaði er með eindæmum. Þegar hann kvað sér hljóðs með plötunni Ísbjarnarblús 17. júní 1980, var honum ýmist hampað sem frelsandi engli eða hann úthrópaður fyrir hávaðasama og taumlausa tónlist sína. Æskufólk fagnaði því að loksins var kominn fram á sjónarsviðið alþýðutónlistarmaður sem talaði tæpitungulaust, en mörgum menntamanninum fannst lítið til orðræðu hans koma. Textarnir voru sagðir argasti leirburður og bull sem ekki ættu eftir að standast tímans tönn. En öðru nær. Textar og lög Bubba hafa sett mark sitt á þjóðina, þrátt fyrir hrakspárnar. Lagið Stál og hnífur er kyrjað hvar sem fólk kemur saman til að gera sér glaðan dag í góðra vina hópi. Það er enginn maður með mönnum nema geta sungið ,,Stál og hnífur er merki mitt, merki farandverkamanna. Þitt var mitt og mitt var þitt meðan ég bjó á meðal manna”. Þarna vitnar Bubbi m.a. í vísuorð Skáld-Rósu, færir þau í nýjan búning svo þau verða lifandi á nýjan leik. Hver hefði trúað því að þessi baráttusöngur gúanóliðsins, farandverkafólks sem vinnur vanþakklát fiskverkunarstörf, yrði helsti rútubílasöngur íslensku þjóðarinnar á seinni hluta 20. aldar? Með þessum söng sínum batt Bubbi ósýnilegan streng milli sín og þjóðarinnar.
Það má segja að Ísbjarnarblús hafi leyst íslenska poppið úr álögum stöðnunar sem ríkt hafði í lok áttunda áratugarins. Hinn ferski andblær sem fylgdi blúsrokki Bubba blés í kulnaðar glæður. Nýir tímar voru að ganga í garð, diskótímabilið að líða undir lok, vinsældir kópíusveitanna að hjaðna og pönkið rétt að ná fótfestu. Fræbblarnir ruddu vissulega brautina, en þegar Utangarðsmenn komu fram á sjónarsviðið með Bubba í fylkingarbrjósti snemma árs 1980 var engu líkara en eitthvert afl leystist úr læðingi. Pönkbylgjan helltist yfir land og lýð eins og sjálft syndaflóðið og eirði engu. Eftir stóð sviðin jörð og upp af eyðimörkinni spratt fjölskrúðugur rokkgróður um allar jarðir. Í þessum Edensgarði rokksins stóð Bubbi Morthens með pálmann í höndunum.
Vöxturinn í rokkgarðinum hefur verið með ýmsu móti. Það hafa komið góð ár með blóm í haga, en rokkgróðurinn hefur einnig orðið fyrir verulegum skakkaföllum. Fæstir sprotarnir hafa náð að vaxa og dafna og verða að gildum stofnum. Bubbi er hinsvegar undantekning því hjá honum hefur mátt sjá sífeldan vöxt undanfarna tvo áratugi. Það er þrautsegjan sem fleytt hefur Bubba áfram og trúlega hefur vertíðarlífið komið honum til góða. Hann kann þá kúnst manna best að standa í aðgerð, að verka aflann hratt og örugglega þegar fiskurinn gefur sig á grunnslóð og sækja síðan á dýpri mið þegar veiðin er tregari. Hans mottó gæti allt eins verið ,,þeir fiska sem róa”. Á hverju ári hefur Bubbi siglt á miðin, farið hringinn í kringum landið, farið í stór pláss og smá og látið sér annt um aðdáendur sína. Hann hefur lagt land undir fót með nýjustu lögin sín í farteskinu á vormánuðum og sungið fyrir sveitamenn og þéttbýlisbúa. Þrætt hvern einasta fjörð, út á ystu nes og fram í innstu dali landsins til að kynna tónlist sína. Spilað fyrir þorpsbúa og sveitafólk. Það hefur varla liðið eitt einasta ár síðustu tvo áratugi að ekki komi út ný plata frá Bubba og meðreiðarsveinum hans. Þessar plötur hafa verið jafnöruggar og misseraskiptin eða sú gamalkunna staðreynd að vetur konungur gengur í garð með gormánuði.
Hver er svo þessi Bubbi Morthens, spyr sá sem ekki veit. Flestir telja sig vita einhver deili á manninum, svo er tónlistinni og textunum fyrir að þakka. Bubbi hefur veitt mörg og ítarleg blaðaviðtöl, komið fram í sjónvarpi og útvarpi og sagt sitthvað af sjálfum sér og sínum nánustu á tónleikum sínum. Margir hafa lesið um fjölskrúðuga ævi hans í bókinni Bubbi sem Silja Aðalsteinsdóttir ritaði og kom út árið 1990, en það er samt ekki úr vegi að rekja helstu æviatriði hans í stuttu máli.
Bubbi Morthens fæddist í Reykjavík 6. júní 1956, yngstur fjögurra sona Grethe Skotter Pedersen og Kristins Morthens. Hann var skýrður Ásbjörn en hefur verið kallaður Bubbi frá fyrstu tíð. Bræður Bubba voru áberandi í æsku, kraftmiklir og uppátektarsamir og fylgdi yngsti bróðirinn í fótspor þeirra. Þegar þeir uxu úr grasi urðu þeir brátt atkvæðamiklir félagsmálamenn og baráttujaxlar sem hafa haslað sér völl í pólitík og listum. Þeir láta fátt stöðva sig þegar þeir hafa einsett sér að ná einhverju markmiði og þennan hæfileika hefur Bubbi einnig í ríkulegum mæli. Á æskuárum sínum var Bubbi mikill bókaormur, en skriftblinda háði honum og átti sinn þátt í að hann hrökklaðist frá námi á unglingsárum. Listir voru í hávegum hafðar á heimilinu, móðir Bubba orti ljóð og skrifaði lítilsháttar og faðir hans fékkst við listmálun og hafði mikið dálæti á ljóðum Einars Benediktssonar. Haukur föðurbróðir Bubba var kunnasti dægurlagasöngvari landsins þegar pilturinn var að alast upp og bræður hans báru tónlist Bítlanna, Stones og Dylan inn á heimilið. Allt þetta drakk Bubbi í sig á æskuárunum. Þegar Bubbi var um fermingu skildu foreldrar hans og fluttist móðirin til fjölskyldu sinnar í Danmörku. Þar komst Bubbi í kynni við hnefaleikaíþróttina og náði góðum árangri í þeirri grein. Hefur áhuginn á hnefaleikum fylgt honum æ síðan. Eftir misheppnaða skólavist á dönskum heimavistarskóla flutti Bubbi aftur heim til Íslands og gerðist farandverkamaður. Hann þvældist á milli verbúða, flakaði fisk, vann í gúanóinu, var við beitingu og margt fleira. Á þessum árum tók hann að þróa gítarstíl sinn sem er undir sterkum áhrifum frá bandaríska þjóðlagasöngvaranum Woody Guthrie og blúsaranum Leadbelly, en einnig má greina áhrif frá Bob Dylan og fleiri tónlistarmönnum. Fyrstu lögin sín samdi hann á þessum árum og söng ennfremur lög og texta Tolla bróður síns. Stál og hnífur er einmitt frá miðjum áttunda áratugnum þegar fáir könnuðust við farandverkamanninn Bubba Morthens. Hann kynntist ástinni og skipbroti því sem getur fylgt í kjölfarið, fór til Færeyja, þvældist milli verstöðva og endaði í Kassagerð Reykjavíkur. Þar kynntist hann bandarísku bræðrunum Mike og Danny Pollock. Saman mynduðu þeir Utangarðsmenn í félagi við tvo tónlistarmenn frá Raufarhöfn Rúnar Erlingsson og Magnús Stefánsson.
Bubbi vakti fyrst einhverja eftirtekt sem vísnasöngvari 1977 og ’78 þegar hann flutti lög sín og ljóð á hæfileikakvöldum Jazzvakningar og Vísnavina. Viðtökurnar voru mjög lofsamlegar og Bubbi ákvað að gera sína fyrstu plötu Ísbjarnarblús og fjármagna hana sjálfur. Hugmyndin var góð, en þar sem fjármagnið var af skornum skammti tók vinnsla langan tíma. Þetta leiddi m.a. til þess að Ísbjarnarblús breyttist úr vísnaplötu í rytmablúsplötu og að endingu í pönkplötu. Þar með var teningunum kastað. Um líkt leyti og vinnslunni var að ljúka urðu Utangarðsmenn til. Platan vakti verulega athygli, Bubbi gerði sólósamning og Utangarðsmenn fengu einnig plötusamning. Þar með fór færibandið á fulla ferð. Bubbi var kominn á bullandi vertíð, en nú var ekki verið að verka fisk eða bræða loðnu heldur leika gúanórokk. Utangarðsmenn tórðu í eitt og hálft ár og hljómsveitin sprakk með hvelli eftir stormasama Norðurlandaferð. Við tók hljómsveitin Ego sem gerði nokkrar plötur, kom fram í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Rokk í Reykjavík og hitaði upp hjá Clash í Laugardalshöll og seinna hjá pönksveitinni Crass. Það hafði ætíð verið mikið öldurót í námunda við Bubba og ekki lægði öldurnar neitt á Ego árunum, öðru nær. Talsverðar mannabreytingar urðu í sveitinni, keyrslan var gríðarleg og óreglan með ólíkindum, svo þetta hlaut að enda með ósköpum. Ego sprakk með látum er Bubbi sagði skilið við félaga sína þegar upptökum á plötunni Ný spor var að ljúka. Strákarnir helltu sér í að semja ný lög og taka upp þriðju og síðustu Ego plötuna, Bubbi samdi textana og söng inn á plötuna með látum og hætti svo. Báðar plöturnar komu út á sama tíma og leið hvor þeirra fyrir nærveru hinnar á markaðnum. Eftir þetta fór Bubbi til Bandaríkjanna til að freista gæfunnar og kom nokkrum mánuðum síðar aftur heim, búinn að fá nóg af Bandaríkjamönnum. Þá varð til hljómsveitin Das Kapital sem gerði eina hljómplötu áður en Bubbi ákvað að fara í meðferð og snúa við blaðinu. Í meðferðinni samdi Bubbi sig frá sínu fyrra lífi og kom tónlistin sem hann samdi á þessum tíma út á plötunni Konu. Þar kvað við nokkuð nýjan tón, enda hófst nýtt skeið á ferli Bubba frá og með þeirri plötu.
Kona seldist betur en fyrri sólóplötur Bubba og nú var hann farinn að huga meira að textunum. Hann lagði sig eftir því að læra bragfræði og fékk aðstoð Megasar og fleiri aðila við þá iðju sína. Nokkrum árum áður hafði samstarf Bubba og Megasar hafist á plötunni Fingraför og saman ferðuðust þeir um landið og héldu tónleika. Síðar átti samstarf þeirra eftir að ná hámarki á plötunni Bláir draumar. En Bubbi stefndi enn einu sinni á erlend mið og nú gekk hann til liðs við sænska fyrirtækið Mistlur fyrir tilstilli Christian Falk, bassaleikara sænsku nýbylgjusveitarinnar Imperiet. Bubbi fluttist til Svíþjóðar 1985-86 þar sem hann tók upp plötuna Frelsi til sölu, lærði ensku í gríð og erg og reyndi fyrir sér á því eðla máli. Einhverra hluta vegna gekk þessi útgerð ekki upp og innan tíðar snéri Bubbi aftur heim og fór að fiska innan 200 mílna lögsögunnar. Samstarf þeirra Christians hélt þó áfram um nokkurra ára bil og er mjög merkur kapítuli á ferli Bubba. Þó þetta samstarf væri um margt gjöfult var það samt platan Dögun sem Bubbi vann árið 1987 með Tómasi Tómassyni, Stuðmanni m.m., sem seldist einna best, en þeir höfðu oft áður átt góða spretti saman á plötum. Sama ár samdi Bubbi tónlist við Skytturnar, kvikmynd Friðriks Þórs, og stofnaði hljómsveitina MX21, sem stóð stutt við.
Næstu ár voru góð og gjöful á ferli Bubba. Hver metsöluplatan kom út á fætur annarri og einna mestrar hylli naut hann þegar ævisagan Bubbi kom út árið 1990. Á sama tíma kom út platan Sögur af landi sem seldist firnavel. Árið eftir stofnaði Bubbi til samstarfs við Rúnar Júlíusson og hljómsveitin GCD varð að veruleika, en þessi ágæta sveit gerði samstals þrjár plötur. Árið 1992 lét Bubbi gamlan draum rætast er hann fór til Kúbu ásamt Eyþóri Gunnarssyni og Gunnlaugi Briem þar sem þeir tóku upp plötuna Von ásamt kúbönsku hljómsveitinni Sierra Maestra. Annar draumur rættist þegar Bubbi söng lög Hauks föðurbróður síns inn á hljómplötuna Í skugga Morthens fyrir nokkrum árum. Þar með vottaði hann Hauki frænda virðingu sína, en Haukur lést langt um aldur fram.
Bubbi Morthens er enn á fullri ferð. Hann gefur árlega út frábærar plötur með grípandi lögum og innihaldsríkum textum sem fá lofsamlega dóma. Hann hefur verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fjölda flokka allt frá því að þau voru sett á stofn. Bubbi er mikill íþróttamaður og keppti um tíma í ólympískum lyftingum en nú allra síðustu árin er hann ekki síður kunnur fyrir áhuga sinna á hnefaleikum. Hann hefur átt stóran þátt í að kynna þessa eftirlætis íþrótt sína fyrir landsmönnum, sem þulur í beinum sjónvarpsútsendingum frá hnefaleikakeppnum stóru meistaranna. En þrátt fyrir þetta nýja hlutverk Bubba er það eftir sem áður tónlistin sem heldur nafni hans á lofti og mun gera það um ókomin ár.
|